Back to All Events

Yasiin Bey 10.9 í Gamla Bíó.

Yasiin Bey í Gamla Bíó 10.9.26, kvöld sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara! Forsala er hafin á Stubb.is/yasiinbey
Almenn miðasala hefst 10. apríl!

Þann 10. September 2026 stígur Yasiin Bey, áður þekktur sem Mos Def, á svið í Gamla Bíó í Reykjavík. Yasiin Bey er einn áhrifamesti tónlistarmaður sinnar kynslóðar og hornsteinn conscious hip-hop senunnar. Hann sló fyrst í gegn seint á 10. áratugnum sem hluti af hip hop dúóinu Black Star ásamt Talib Kweli. Með tímamótaplötum á borð við Black on Both Sides og The New Danger mótaði Yasiin Bey nýja sýn á það hvað hip-hop gæti verið: hugmyndaríkt, pólitískt og listilega djúpt. Ferill hans spannar samstarf við listamenn á borð við Kanye West, Hi Tek, Madlib og J Dilla.
Listamannsnafnið Yasiin Bey markar ekki endurnýjun ímyndar Mos Def heldur afstöðu. Nafnið endurspeglar þá hugsjón sem hefur alltaf einkennt feril hans: að nota tónlist sem miðil fyrir merkingu, sannleika og menningarlega ábyrgð.

Á sviði er Yasiin Bey þekktur fyrir einstaka nærveru. Flutningurinn er hrár og lifandi og inniheldur ófyrirsjáanlega upplifun þar sem hip-hop, spuni, pólitík og persónuleg tjáning renna saman í eitt.
Miðasala fer fram á Stubb.is og er takmarkað magn miða í boði.
Menningarhreyfingin Liveproject stendur fyrir tónleikunum en hreyfingin stóð einnig fyrir tónleikum Mobb Deep sem fram fóru í KR-heimilinu í mars og vöktu mikla athygli. Þá hefur Liveproject staðið að viðburðum þar sem fram hafa komið stjörnur á borð við The Pharcyde, Booka Shade, DJ Shadow, Carl Craig og Talib Kweli.

Í boði:
Peroni 0.0
66 Norður
Prikið
Hopp
Joe & The Juice
Kuldi

Previous
Previous
November 19

Röntgen

Next
Next
September 12

Röntgen dj set